Úff það er nú ekki oft sem maður er feginn að komast aftur í vinnuna á mánudegi en þessi helgi var svoleiðis! Hún byrjaði með þætti á föstudagskvöldið og ég var ekki komin heim fyrr en að ganga 2, svo varð maður bara að rífa sig upp kl.7 til að fljúga vestur þar sem við í Apollo vorum með ball í Sjallanum á laugardagskvöldið!
Svo var æft stíft allan daginn en ballið byrjaði svo uppúr miðnætti! Það tókst bara vel og mættu hátt í 200manns í litla sjallan okkar fyrir vestan.. Svo flaug ég aftur suður á sunnudeginum og fór á æfingu með Nokkuð Skothelt !
Þetta var helgin, skrifa meira seinna
Helgi Þór
25 apríl 2005
Brjáluð helgi!
20 apríl 2005
Að búa til nýja síðu!
Ég er að vinna í því núna að útbúa nýja síðu, sem yrði þá ekki undir blogspot. Þar yrði dagbók, eitthvað um mig og dagatal sem sýnir hvað ég er að gera þessa dagana í spileríi og þess háttar! Ég er að vona að þessi síða verði tilbúin bara á allra næstu dögum en þið getið fylgst með gangi mála hér á slóðinni www.simnet.is/hta/helgi =)
Helgi Þór
Kominn aftur !
Jæja elskurnar mínar, þetta er búið að vera dotlið langt hlé frá blogginu!
Eins og einhverjir tóku eftir sem hafa verið að lesa þessi skrif mín þá þurfti ég að loka blogginu fyrir u.þ.b 2 mánuðum síðan vegna Idolsins, þeas vegna fjölmiðlabannsins sem við vorum í en nú er kominn aftur og ætla að vera enn duglegri en síðast!
Það sem er að frétta svona helst er að ég er byrjaður að vinna hér í bænum, er að stjórna stefnumótaþættinum Djúpa laugin 2 á SKJÁEINUM og er einnig byrjaður í nýju dúndurbandi!
Fljótlega mun ég þó líklega setja upp nýja síðu sem verður með bloggkerfi og dagatali þar sem hægt er að fylgjast með því hvað ég er að gera:)
Fylgist endilega með,
kær kv, Helgi Þór =)
