25 júlí 2005

Fínasta helgi (helgi)

Helgin var góð...!

Á föstudaginn var planið að kíkja í afmælið til Palla, kærasta Brynju, vinkonu Ingu, kærasta Helga (ég) en lítið varð úr því að Inga greyið var hálfveik og við vorum bara heima. Horfðum á sjónvarpið og höfðum það gott!

Á laugardaginn var ekkert planað en allir í lúmsku stuði. Við fórum til Völu um 10 leytið og sötruðum þar og hituðum upp fyrir ballið um kvöldið. Valur var að fara að syngja með Stuðmönnum á Nasa svo við eltum hana þangað (ég og Inga) og byrjuðum að dansa og áður en við vissum af var klukkan að ganga 5! Frábært djamm!

Svo í gærkvöldi kíktum við á The Longest Yard í bíó, góð mynd!

Meira í vikunni! :)

23 júlí 2005

Loksins loksins!

Í dag verður hæg norðvestlæg átt eða hafgola. Léttskýjað verður suðvestanlands og einnig inn til landsins í flestum landshlutum, en víða þokuloft við ströndina, einkum yfir nóttina. Hiti verður 10 til 22 stig, hlýjast inn til landsins suðvestantil.
Klukkan sex í morgun var hægviðri á landinu, Víða skýjað og þokuloft, en sums staðar léttskýjað suðvestantil.
Klukkan níu var 12 stiga hiti í Reykjavík, 11 stig á Akureyri, 8 stig á Egilstöðum og 12 á KirkjubæjarklaustriHeimild: MBL.IS


JÉSS!

21 júlí 2005

Djamm á helginni!

Jæja, nú verður tekið á því á helginni!

Undanfarnar helgar höfum við Inga farið uppí sumarbústað og tekið því rólega og á síðustu helgi fór ég svo heim á Ísafjörð og fór í hóp-heimsóknir.

Núna er svo búið að ákveða að það verður djammað. Eða svo var mér tilkynnt frá Ingu í gær :o)
Það er víst smá fimmtudagsdjamm í kvöld, Valur í fríi annaðkvöld svo þá verður partí og svo á ball með Stuðmönnum og Hildi á laugardaginn á NASA!

Ég veit ekki hvort ég hef þetta af eftir svona langt djammfrí!?

Kemur í ljós......

20 júlí 2005

Nýr bíll!

Opel Vectra

Tóm gleði !

19 júlí 2005

Verslunarmannahelgin?

Nú fer að styttast í verslunarmannahelgina og ég er að spá hvar landið liggur? Hvert ætlar fólk almennt að fara um helgina?

Þjóðhátíð í Eyjum eru auðvitað vinsæll kostur en ég bara held ég fari frekar næst. Ekki alveg upplagður í útifyllerí.

Endilega segið hvert þið ætlið, hugmyndir vel þegnar!

12 júlí 2005

BÍÓ.IS

Sumir halda að ég sé að auglýsa eitthvað! En nei! Nefnilega ekki. Ég er bara að svona, já, kynna ykkur það sem er svo frábært!

Hefurðu aldrei hugsað: Hmm... Langar mig í bíó?

Nú geturðu bara farið inn á www.bio.is og kíkt hvað er í bío, annaðhvort eftir mynd eða kvikmyndahúsi! Svo er hægt að kommenta um myndir, skoða ALLT um þær! Gefa þeim stjörnur og síðast en ekki síst er alltaf verið að gefa hitt og þetta tengt myndunum. Varning og forsýningar aðeins fyrir meðlimi BÍÓklúbbsins!

Eina málið er verðið í klúbbinn! Vitiði hvað það er?

0 kr! Skráðu þig núna! BÍÓklúbbur BÍÓ.IS

11 júlí 2005

Ég og X-ið

Ég hef komist að því að útvarpsmenn X-sins FM97.7 eru ekki beinlínis vinir mínir. Mér er farið að teljast svo til að þeir hati mig ef eitthvað er. Ekki kvarta ég þó. Mér er alltaf skemmt þegar ég heyri þá tala um mig í listunum sínum!

Fyrir þá sem ekki vita hvað ég er að fara þá hafa glöggir tekið eftir því að á útvarpsstöðinni X-inu eru alltaf svona topp 10 listar yfir hina og þessa hlutina. Nú t.d. síðast var í dag listi yfir þá hluti sem löggan ætti að fara að nota við yfirheyrslur. Númer 8. á listanum var svo enginn annar en ég ! En fyndið! Semsagt, nr. 8 - Að láta glæpamenn sæta umræður um heimsmálin við Helga Þór í Idol!

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég heyri þetta en ég vona að þeir haldi þessu áfram því mér finnst þetta mjög gaman! =o)

Ég verð samt að lýsa yfir takmarkaðri hrifningu minni af stöðinni. Til þess að hljóma ekki eins og bitri gæinn ætla ég að rökstyðja mál mitt:
Þar sem ég vinn núna er stöðin látin malla mikið á útvarpstækinu sem glymur yfir eyrunum á mér og eftir að hafa hlustað í svona u.þ.b 6 tíma samfleytt tók ég eftir einu. Ég var búinn að heyra svona 8 lög! Ég get svo svarið fyrir það! Annaðhvort eiga þeir lítinn harðan disk, lélegan playlista eða kunna ekki að rippa lög í Windows Media Player. Ef einhver starfsmanna les þennan póst þó er ég meira en lítið til í að chippa inn í fyrir nýjum disk eða kenna ykkur á Winamp eða Windows Media, allt eftir þörfum:)

01 júlí 2005

Ok, ég segi ekki orð!

Ég held að ég geti ekki einu sinni reynt að afsaka þessa framkomu mína sem bloggara en ég hef bara ekkert verið að standa mig! Nú vill ég samt í 5skiptið meina að nú stefni í bjartari tíma!

Annars er það af mér að frétta að Djúpa laugin er búin, síðasti þátturinn var á föstudagskvöldið síðasta og að ég er byrjaður í nýrri vinnu! Ég segi ekki nákvæmlega hvað það er en endilega kíkið á www.bio.is ! Góð síða!

Svo er ég bara alltaf að leigja með Gunna og hafa það gott í borginni, látið nú heyra í ykkur kæru vinir og kunningjar !:)

Bestu kveðjur,
Helgi Þór