Ég hef komist að því að útvarpsmenn X-sins FM97.7 eru ekki beinlínis vinir mínir. Mér er farið að teljast svo til að þeir hati mig ef eitthvað er. Ekki kvarta ég þó. Mér er alltaf skemmt þegar ég heyri þá tala um mig í listunum sínum!
Fyrir þá sem ekki vita hvað ég er að fara þá hafa glöggir tekið eftir því að á útvarpsstöðinni X-inu eru alltaf svona topp 10 listar yfir hina og þessa hlutina. Nú t.d. síðast var í dag listi yfir þá hluti sem löggan ætti að fara að nota við yfirheyrslur. Númer 8. á listanum var svo enginn annar en ég ! En fyndið! Semsagt, nr. 8 - Að láta glæpamenn sæta umræður um heimsmálin við Helga Þór í Idol!
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég heyri þetta en ég vona að þeir haldi þessu áfram því mér finnst þetta mjög gaman! =o)
Ég verð samt að lýsa yfir takmarkaðri hrifningu minni af stöðinni. Til þess að hljóma ekki eins og bitri gæinn ætla ég að rökstyðja mál mitt:
Þar sem ég vinn núna er stöðin látin malla mikið á útvarpstækinu sem glymur yfir eyrunum á mér og eftir að hafa hlustað í svona u.þ.b 6 tíma samfleytt tók ég eftir einu. Ég var búinn að heyra svona 8 lög! Ég get svo svarið fyrir það! Annaðhvort eiga þeir lítinn harðan disk, lélegan playlista eða kunna ekki að rippa lög í Windows Media Player. Ef einhver starfsmanna les þennan póst þó er ég meira en lítið til í að chippa inn í fyrir nýjum disk eða kenna ykkur á Winamp eða Windows Media, allt eftir þörfum:)
Jebb, sammála þessu síðasta..
SvaraEyðaJá sammála þessu með lögin!
SvaraEyðaAlltaf sama aftur og aftur en samt aðeins betri forrit en winamp og win. media player notað á útvarpstöðvum!
Ok, þeir geta dissað hvað sem er ... En X-ið er ein ömurlegasta útvarpstöðin á markaðnum í dag og flestar eru þær ótrúlega lélegar og spila ömurleg lög, mjög takmörkuð fjölbreytni a.m.k í lagavalinu. Íslensku útvarpi fer mjög svo hrakandi, fólk er hætt að setja passion í þetta og gera þetta af lífi og sál og spila virkilega góða músík í stað þess að spila alltaf vinsælustu lögin aftur og aftur þangað til að maður ælir.
SvaraEyðaÍslensku útvarps fól, þið megið skammast ykkar því þið gegnið mikilvægu hlutverki í okkar samfélagi en þið bara haldið alltaf áfram að drulla í ykkur.
(það má kanski gera undantekningu frá rás2 því þar eru andrea og óli Palli að gera ágætis hluti)
Og nei, Ég er ekki að segja þetta til að hylma yfir þér Helgi, þó svo að mér persónulega fannst djúpa laugin í ár vægast sagt slöpp(en það er allt önnur ella)... en maður er bara kominn með í kok á þessu og breyting verður að vera til batnaðar til að við neytandafólin fáum eitthvað fyrir okkar snúð.
Með þökk og góðar stundir,
Guðmundur Góði
Helgi, þú ert ekki beint gáfaður sé ég, þeir rippa ekki lög inná playlistann sinn, því það einfaldlega má ekki, ekki nema til einkanotkana. X-ið er ekki beint einkanotkun, kannski ættir að hugsa aðeins áður en þú segir svona hluti :) en annars .. þá finnst mér þessi stöð spila bestu tónlistina, nema það er alveg rétt að það er spilað of litla tónlist ... og röflað alltof mikið!
SvaraEyðaHehe. Ég sagði nú bara svona til þess að þetta hljómaði vel. Átti ég frekar að segja ,,kenna ykkur að tala við réttu aðilana, encod-a lögin og hlaða þeim inn í RadPlay ?
SvaraEyðaÞeir rippa víst lög á x-inu og þeir gera það á fleirri útvarpsstöðvum. Þeir rippa ekki öll lögin en það kemur fyrir .... I know. En Helgi, ég verð nú að segja að ég er kominn með álíka leið á þér og á x-inu og það tók mig miklu styttri tíma að fá leið á þér.... verst að það er ekki hægt að kaupa stærri disk í þig eða rippa nokkra diska svona til að lappa aðeins upp á þig
SvaraEyðaVel svarað félagi
SvaraEyðaJá það er alltaf hættan:) Maður er annaðhvort hataður eða elskaður! Verður að taka því eins og hverju öðru. Ég á samt erfitt með að taka þetta inná mig þegar ég veit ekki hver þú ert.
SvaraEyðaÞú ert helvíti fyndinn gaur... ekki samt viss um að þú ætlir þér það!
SvaraEyðaOhh...það er svo fyndið að sjá þig vera að skrifa eitthvað: "Mér er alltaf skemmt þegar ég heyri þá tala um mig í listunum mínum"! Þú ert svo greinilega að láta fólk vita eins mikið og þú getur að þú sért eitthvað celeb og það sé verið að tala um þig í ÚTVARPINU! Og svo að segja að þér sé alveg sama að þeir séu að dissa þig og segja að þú sért ömurlegur. Staðreyndir er að þú ert ömurlegur og ég held að það hafi eiginlega þorrinn af þjóðinni hatað þig þegar þú varst í þessu Idol kjaftæði og ekki bætti úr skák þegar þú varðst lélegasti þáttarstjórnandi landsins!
SvaraEyðaSorry...bara staðreind!
ég verð bara að segja...
SvaraEyðaekkert mál að hafa skoðun... en helvítis aumingjar og fávitar.. að geta þora hvorki að setja nafn né annað undir skrift sínar....
þetta er ekkert annað en aumingja skapur... ef þú ætlar að segja skoðun þína... slæma eða góða.. og vilt að hún sé gerð marktæk.. skaltu drullast til að setja inn nafnið þitt... and a way to get the response...
þvílíkur aumingja skapur... í raun ætti að eyða comentum ykkar út..
Hi Helgi :) Melkorka her :) Var ad lesa commentin og eg skil bara ekki hvernig folk nennir ad eyda tima i ad lesa bloggid titt ef teim finnst tu vera svona omurlegur! Tad er bara eitt svar! Tetta folk a greinilega ekkert lif!!! Og alveg glatad ad tad geti ekki sett inn nafn! Tetta eru ekkert nema hrekkjukjodar sem hafa ekkert betra vid timan ad gera! En tu veist mer finnst tu aedislegur :)
SvaraEyðaÞað eru nú bara vitleysingar sem nota Windows Media Player til að rippa eitthvað.
SvaraEyða....Mér fynnst þú ÆÐI!! :P:P Það fylgir bara frægðinni að vera hataður JÚ!! eða ELSKAÐUR!!!!
SvaraEyðaRosalega eru þessir einstaklingar málefnalegir. Mig langar að benda á að útvarpsstöðvar þurfa bara leyfi til að spila lög... Skiptir engu máli af hvaða "medium" það er spilað.
SvaraEyðaOg hvað fær ykkur til að segja svona hluti við mann sem þið þekkið ekki neitt? Segir meira um ykkur en nokkurntíman um hann.
Mathafakkas! ;)
Og þessi athugasemd:
SvaraEyða"Ohh...það er svo fyndið að sjá þig vera að skrifa eitthvað: "Mér er alltaf skemmt þegar ég heyri þá tala um mig í listunum mínum"! Þú ert svo greinilega að láta fólk vita eins mikið og þú getur að þú sért eitthvað celeb og það sé verið að tala um þig í ÚTVARPINU!"
Þetta er ein al-súrasta athugasemd sem ég hef lesið. Afbrygðisemin skín svo skært í gegn að það þarf logsuðugrímu til að fá ekki ofbyrtu í augun. ;)
Shjiii'