27 september 2005

Bloggið lifir!

Já sveimér þá, sum ykkar hafa örugglega haldið að ég væri dauður! En nei, síður en svo. Ég er ekki dauður!

Ég hef verið að eyða undanförnum dögum, vikum og mánuðum í eftirfarandi; Vinnu, Heitar Lummur, Fótbolta, Sund, Líkamsrækt og Tölvuleikjaspilerí (allt capital, bara!)

Mig langar í nýja myndvél! Nánar tiltekið þessa hérna! En ég veit ekki hversu duglegur maður yrði að nota hana!

Ég eyddi öllum gærdeginum á hárgreiðslustofu með krökkunum og í ljósmyndastúdíóinu. Við tókum upp plaggötin fyrir Heitar Lummur og ýmisst svona prómó dót. Mæting kl. 09:00 og ég kom heim kl. 23:15 ! Það gera 14 tíma og kortér! Urrg.....

Ætla að reyna að kíkja heim á ísafjörð við tækifæri en ,,við tækifæri" hefur orðið tapað allri merkingu. Við tækifæri þýddi alltaf ,,á næstu helgi" eða strax í dag, en núna veit ég ekki hvað næsta tækifæri verður. Kannski ekki fyrr en í janúar! Synd og skömm!

En jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, verið dugleg að commenta!

02 september 2005

...?

Hvað segiði nú skemmtilegt?