Já ég veit, langt síðan ég bloggaði síðast. Það fyndnasta við það er að ég sit fyrir framan tölvu ALLAN daginn í Símanum og mestan partinn af þeim tíma er ég ekki að "gera neitt" þannig sérstakt. En betra er að byrja rólega en að sprengja sig á fyrstu metrunum sagði einhver;)En til að útskýra titilinn á blogginu, þá er ég á leiðinni í bíó í kvöld á hina miklu mynd, DIE HARD 4.0 ! Sem ég hef tröllatrú á, svona miðað við það sem maður hefur verið að heyra útundan sér og svo er trailerinn líka eins og að vera sleginn í framan með blautri tusku af HASAR! Svo fyrir "litla" (mjöööög stórt orð) stráka er þessi mynd ábyggilega topp ræma, hinsvegar mun ég fara í bíó með Elísabetu og við skulum segja að við séum "mis" spennt.. Þó ekki sé meira sagt!
Annars er þetta búið að vera RUGL fínt sumar, geðveikt veður og ég labba útúr húsinu mínu á hverjum morgni haldandi að ég sé annarstaðar en á Íslandi. Búinn að eyða góðum tíma í sundlaugunum svo ég er farinn að fá smááá lit, sem gerist annars mjög sjaldan nema jú með ofnotkun á ljósabekkjum sem ég má ekki lengur gera ... ég þekki hjúkrunarfræðinema sem er ekki sáttur.
Hemmi vinur minn var að kaupa sér Audi TT og ég er afbrýðisamur bíladellustrákur, en hinsvegar er veskið mitt ekki afbrýðisamt þar sem ég veit hvað hann er að borga á mánuði.
HINSVEGAR... í ljósi þess, hef ég ákveðið að taka mótorhjólapróf í sumar! Láta langþráðan draum rætast. Ég veit að það er pínu lúðalegt að ætla að verða mótorhjólagaur núna, en þú veist, betra að taka þetta út bara núna en ekki um fimmtugt ;)
Ég ætla að byrja á því að fá mér svona barnatæki 50cc, lítur út nákvæmlega svona! enda sjáiði verðið!! Þetta er gefins, miðað við cool-factorinn sem er 9 af 3 mögulegum! Allaveg er þetta fín byrjun áður en ég fer að drepa mig á 1000 hjóli.
Ég sótti einnig um í Hraðbraut sem ég er að vona að gangi í gegn og með þau plön að leiðarljósi verð ég orðinn stúdent næsta vor. Vúhú, betra seint en aldrei :(
Fyndið hvað ég get samt misst mig þegar ég á annaðborð byrja að skrifa blogg.. fjúff!
Annars er ég glaður, í alla staði. Vona að veðrið haldist!
Meira síðar....... Helgi!
Bíddu bíddu... er bara að rekast á þessa síðu núna. Frábært hvað ég frétti alltaf allt síðust í þessari fjölskyldu.. Allavega gaman að geta fylgst með þér frændpungur. Kv.Ester
SvaraEyðahehe... settir þú þetta inn á wikipedia?! En farðu nú að hringja í mig... margt mikið og skemmtilegt er búið að gerast :) Heyrumst
SvaraEyðaneeeeeeeeiiiihhhh þar fór kúlið. Mótorhjól...
SvaraEyða...ég er svo aldeilis hissa :)
Ótrúlegt hvað Die hard var bara góð:) ...en það þýðir samt ekki að við séum hætt við að fara á stelpumynd næst! ;)
SvaraEyðaÉg veit ekki hvernig þú ferð að þessu en: Myndarlegur, góður bloggari, söngur, leiklist.. þú ert bara góður í öllu sem þú gerir Helgi!! Úff.. Teach me boy! TEACH ME !
SvaraEyðaRólegur.. haha! En já flott að sjá þig blogga aftur drengur! Fylgist með !!
SvaraEyðaMagni þú ert gay.
SvaraEyðaÉG verð að taka undir með því að DIE HARD 4 er ein besta Die Hard myndin, ef ekki bara sú allra besta til þessa! HANDS DOWN GEÐVEIK !
SvaraEyðanafnlaus nr.2 var ég fröken Gulla :)
SvaraEyðaþetta var bara óvart að nafnið hafi ekki komið með haha :)
Ég var svooo búin að fatta að þetta værir þú Gulla mín;)
SvaraEyðaohh þú ert svo klevvver beta! :)
SvaraEyðakv.Gullugull.