10 október 2007

Fluttur inn :o)

Loksins loksins sá ég að það var kominn tími á nýja bloggfærslu enda ekki lítið að frétta! Eins og glöggir vinir og vandamenn ættu að vera búnir að frétta þá er ég fluttur inn í nýju íbúðina með Betunni minni, kominn í sambúð og allt skráð og skrifað :-)

Íbúðin sem í fyrstu var með einu risastóru GRÆNU svefnherbergi, gráum hurðarlistum og gluggakistum og ógeðs-mangó gulum veggjum annarstaðar í íbúðinni er nú orðinn eins og ný. Við tókum okkur til (misstum okkur aðeins) og máluðum ALLT í íbúðinni. Alla veggi, loftin, alla hurðarkarma og gluggakistur og ég veit ekki hvað og hvað.

Hér með lofa ég myndum úr höllinni sem allra fyrst :-) (um leið og netið kemur íbúðina) .... en svo er reyndar mjög líklegt að Beta verði á undan mér þar sem hún er þekkt fyrir elju og metnað í bloggheiminum .... :-D
www.123.is/elisabet456

Svo var fleira að gerast en ég og mamma ákváðum að skipta um bíl. Með því sigldi gamli góði Opelinn úr hlaðinu og í staðinn er kominn fagurrauður Volvo S40 sem mun prýða Miklubrautina! Myndir koma síðar :-)

Annars er skólinn að pirra mig þessa dagana. Aðallega af því að í öllu íbúðarstússinu þá gleymdist hann dáldið og nú er ég ekki aaaalveg í bestu málunum en það vonandi reddast. Sem það reyndar pottþétt gerist, Volvo, nýtt (mitt fyrsta) alvöru heimili, og mín ástkæra sambýliskona :-) .....gerist það mikið betra :-)

meira fljótt...

Helgi