Loksins loksins sá ég að það var kominn tími á nýja bloggfærslu enda ekki lítið að frétta! Eins og glöggir vinir og vandamenn ættu að vera búnir að frétta þá er ég fluttur inn í nýju íbúðina með Betunni minni, kominn í sambúð og allt skráð og skrifað :-)
Íbúðin sem í fyrstu var með einu risastóru GRÆNU svefnherbergi, gráum hurðarlistum og gluggakistum og ógeðs-mangó gulum veggjum annarstaðar í íbúðinni er nú orðinn eins og ný. Við tókum okkur til (misstum okkur aðeins) og máluðum ALLT í íbúðinni. Alla veggi, loftin, alla hurðarkarma og gluggakistur og ég veit ekki hvað og hvað.
Hér með lofa ég myndum úr höllinni sem allra fyrst :-) (um leið og netið kemur íbúðina) .... en svo er reyndar mjög líklegt að Beta verði á undan mér þar sem hún er þekkt fyrir elju og metnað í bloggheiminum .... :-D
www.123.is/elisabet456
Svo var fleira að gerast en ég og mamma ákváðum að skipta um bíl. Með því sigldi gamli góði Opelinn úr hlaðinu og í staðinn er kominn fagurrauður Volvo S40 sem mun prýða Miklubrautina! Myndir koma síðar :-)
Annars er skólinn að pirra mig þessa dagana. Aðallega af því að í öllu íbúðarstússinu þá gleymdist hann dáldið og nú er ég ekki aaaalveg í bestu málunum en það vonandi reddast. Sem það reyndar pottþétt gerist, Volvo, nýtt (mitt fyrsta) alvöru heimili, og mín ástkæra sambýliskona :-) .....gerist það mikið betra :-)
meira fljótt...
Helgi
Til hamingju :) hlakka til að koma í heimsókn og sjá hvernig íbúðin er með húsgögnum.
SvaraEyðaÞað er aldeilis verið að stinga mann af í lífsgæðakapphlaupinu... ég er ekki einu sinni kominn af stað!
SvaraEyðavúhúúúúu! blogg blogg:) I like it! ...og hey skólinn reddast pottó hjá okkur báðum, ég er alveg viss um það:) svo framarlega sem vinir og vandamenn skilja að við verðum ekki jammarar dauðans fram að prófum:D ....sambýliskonan skráða:)
SvaraEyða