04 nóvember 2007

Lífið komið í eðlilegt horf og .... JÓLIN NÁLGAST VÚHÚ !!!!

Þegar ég byrjaði aftur að blogga þá lofaði ég e-m ónefndum því að ég myndi aldrei láta líða lengur en mánuð á milli bloggfærslna svo í ljósi drengskaparloforðsins þá mátti ég til með að henda inn einni færslu.

Heyrðu já.... að frétta...? Ég og Beta erum búin að koma okkur fyrir í kotinu okkar góða og allt meira og minna orðið klárt. Það er alveg ótrúlegt hvað það er yyyndislegt að eiga sitt eigið heimili, eiginlega kom mér á óvart. Það er einhvernveginn ALLT öðruvísi að leigja e-a íbúð sem e-r á en að koma heim til sín eftir langan dag í vinnunni (eða vinnunum) og setjast uppí sófa ,,heima hjá sér".

Annars er búið að vera svo kreisí mikið að gera uppá síðkastið. Sjálfur er ég að vinna upp mína 70% vinnu fyrir þennan mánuðinn á svona ca 10 dögum og svo byrjar skólinn aftur á fullu á morgun. Elísabet er búin að vera í verknámi OG í vinnu OG að skila allnokkrum risa ritgerðum í skólanum OG reyna að byrja að læra undir prófin OG ...... já, en semsagt búið að vera kreisí eins og heyra má og við getum ekki BEEEÐIÐ eftir jólunum !!!

...talandi um jólin, þá finnst mér svo ótrúlega skemmtilegt að í fyrsta skipti í ár alveg síðan ég var barn hlakka ég til jólanna á þennan gamla góða jóla-hátt. Ég get ekki beðið eftir því að geta sofið út á morgnanna, verslað jólagjafir, setið heima og skrifað jólakort og borðað tilbúnar keyptar piparkökur úr búð og drukkið dísætt jólaöl, farið í bæinn á þorláksmessu (jafnvel með jólasveinahúfu), hitt fjölskylduna (báðar mínar) .. og bara, notið þess að eiga smá rólegan tíma án vinnu, skóla, verkefna, prófa, málningarvinnu eða almennu stressi. Þetta sýnir sig best í því að ég kem heim daglega og byrja að segja Elísabetu frá öllum utanlandsferðatilboðunum sem ég var að skoða í vinnunni. Allavega, verður fríið langþráð :)

Ég er meira að segja farinn að ganga svo langt í fyrsta skipti á ævi minni að vilja fá jólaljósin upp snemma í ár og svindla smá... oooog ég setti gamla Hvít Jól jóladiskinn á í gær, og þá fyrst komst ég í jólastuð.

Hefurðu spáð í því hvað jólin væru mikið minna hátíðleg jólaleg án tónlistar, jólalaganna. Ef maður færi út á þorláksmessukvöld, allt skreytt og litríkt og fagurt og svo hlustaði maður bara á Justin og 50 cent í útvarpinu á meðan.

Nei! Eins mikið og maður vill ekki að það byrji of snemma þá finnst mér svo frábært þegar útvarpsstöðvarnar byrja með jólalögin og gjörsamlega jólanauðga manni. En hátíðlegt orð, jólanauðgun. :o(

Ég segi Chest nuts roasting on an open flame .... (man ekki titilinn), Jólahjól, jólalagið með í svörtum fötum, ég sá mömmu kyssa jólasvein og Snjókorn falla!

Hvað er uppáhaldsjólalagið þitt ?

2 ummæli:

  1. Nafnlaus12:46 e.h.

    heyrðu ég er alveg sammála þér með snjókorn falla... en ég manneskjan sem elska sko ekki bjögga halldórs þá er lagið friðarjól með honum það fallegasta sem ég hef heyrt ;)

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus7:50 e.h.

    Hæ Helgi.
    Kíki stundum á síðuna þína og það er dónalegt að kvitta aldrei ;)

    Sammála með jólalagið með í svörtum fötum, baggalútslögin eru líka í uppáhaldi hjá mér, sérstaklega sússi og aðventulagið...

    Annars bara hamingjuóskir til ykkar skötuhjúanna með nýju íbúðina ;)

    SvaraEyða