Já sveimér þá, sum ykkar hafa örugglega haldið að ég væri dauður! En nei, síður en svo. Ég er ekki dauður!
Ég hef verið að eyða undanförnum dögum, vikum og mánuðum í eftirfarandi; Vinnu, Heitar Lummur, Fótbolta, Sund, Líkamsrækt og Tölvuleikjaspilerí (allt capital, bara!)
Mig langar í nýja myndvél! Nánar tiltekið þessa hérna! En ég veit ekki hversu duglegur maður yrði að nota hana!
Ég eyddi öllum gærdeginum á hárgreiðslustofu með krökkunum og í ljósmyndastúdíóinu. Við tókum upp plaggötin fyrir Heitar Lummur og ýmisst svona prómó dót. Mæting kl. 09:00 og ég kom heim kl. 23:15 ! Það gera 14 tíma og kortér! Urrg.....
Ætla að reyna að kíkja heim á ísafjörð við tækifæri en ,,við tækifæri" hefur orðið tapað allri merkingu. Við tækifæri þýddi alltaf ,,á næstu helgi" eða strax í dag, en núna veit ég ekki hvað næsta tækifæri verður. Kannski ekki fyrr en í janúar! Synd og skömm!
En jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, verið dugleg að commenta!
27 september 2005
Bloggið lifir!
Skrifað af....
Helgi Þór
kl.
08:49
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

6 ummæli:
Láttu mig vita þegar 'við tækifæri' poppar uppá.. Held sjálfur að minn næsti séns verði á jólunum. Sko - séns á að kíkja vestur, ekki sko.. æjh.. blah
takk f. síðast sæti ;)
hei mín er að fara núna um helgina að slappa af í húsinu;)
He´s alive!
Hafðu það gott ;)
Ég þarf víst að "klukka" einhverja þar sem ég lenti í þessari vitleysu.. og þú ert einn af þeim heppnu ;)
Klukk!
þu skuldar mér djamm;)
Skrifa ummæli