Jæja þá er liðin rúmur mánuður síðan ég bloggaði síðast og miiiikið og margt gerst síðan þá. Ég hef hreinlega haft svo mikið að gera að ég held ég geti með sanni sagt að ég hafi varla haft tíma til að skrifa neitt hér (fyrir utan 3 næturvaktir í röð þar sem ég gerði EKKERT) en kom ekki út orði vegna þreytu :)
En semsagt, margt hefur gerst!! Ég er loksins búinn að fá skólamálin mín á hreint. Ég fékk inn í Hraðbraut þar sem ég fer á skólasetningu á fimmtudagsmorguninn, ég minntist á það við mömmu og hún varð alveg miður sín að hún kæmist ekki með mér, ég sagði henni að það væri kannski ekki AAALVEG must að fylgja mér núna, hún þyrfti víst að sætta sig við að ég væri orðinn 249 mánaða gamall, 176 centimetrar og heil 70 kíló MEÐ skóltösku :o) svo ég held ég spjari mig nú á skólasetningunni með krökkum sem eru FÆDD ÁRIÐ 1991 ! JÁ ÉG VEIT NÍTJÁNHUNDURÐ NÍTÍU OG FOKKING EITT !!
En það er alltílagi, ég ætla bara að mæta og læra og læra og læra og verða stúdent vorið 2008. 2 árum á eftir áætlun.
En að máli málanna......................
ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM 2007
Ég fór í fyrsta skipti á Þjóðhátíð núna um helgina og var bara að koma heim í gær. Ég hafði ákveðið að fara fyrir löngu síðan "with the dudes", Markús og félögum en svo hittist svo vel á að Betan mín var einmitt líka á leiðinni með sínum vinum. Við ákváðum samt að fara bara 2 með herjólfi svona bara að gamni og vorum mætt á fimmtudagskvöldið klukkan 22.
Án þess að ég fari að fara yfir dagana hvern og einn þá var þessi ferð í stuttu máli einhver, ef ekki allra besta helgi lífs míns. Ég fékk að gista með stelpunum á gistiheimilinu flestar næturnar þar sem við áttum margar góðar stundir, mjög svo mis-edrú þó!
Sumir drápust inní tjaldi þessa helgi, aðrir strippuðu, einhver fór með með stelpu inní tjald en fékk það ekki vegna mikils áfengismagns í blóði, aðrir týndu bíllyklunum sínum, einhverjir rifust og sumir voru ástfangnir og hlustuðu á brekkusöng sem þeir munu aldrei gleyma.
Myndirnar hennar Betu hér >>
Meira fljótt!
Helgi
07 ágúst 2007
Þjóðhátíð 2007 !!
Skrifað af....
Helgi Þór
kl.
21:45
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
Lífið er yndislegt, sjáðu það eeer rétt að byrja hér! :) Þessi helgi var æði, það er sko alveg satt og engin orð fá henni líst. Bara takk allir sem voru þarna og lesa þetta. BETAN:o)
Helgi minn gott að þú skemmtir þér! Beta þú hefur það bara í huga að passa að Helgi drekki ekki Carlsberg á fylleríum, þá endar kvöldið betur.
DAM YOU CARLSBERG!!!!!!!! "#$#$"&
Hehe, þú hefur gott af því að skemmta þér með félaga Carlsberg annað slagið. Annars var þessi helgi í alla staði frábær og já .. "það er sko rétt að byrja hér"!
nei sko helgi þú misskilur.. ég týndi bíllyklunum viljandi vildi bara leifa þeim að skemmta sér aðeins lengur án þess að ég væri að passa þá ;)
kv harpa
Skrifa ummæli