Já sveimér þá, nú er liðinn hálfur mánuður síðan að ég byrjaði í Hraðbraut. Það hefur allt gengið vel so far, hef fengið fínar einkunnir úr þeim prófum sem ég hef tekið og allt annað gengið vel en auk skólans hef ég verið að vinna á FM eftir skóla frá 18 - 22 og svo allar helgar bæði laugardag og sunudag í Símanum. Svona áður en skólinn byrjaði hafði ég hugsað mér að gera þetta meira og minna í allan vetur en eftir 2 vikur hef ég séð að stundum er betra að fara sér aaaðeins hægar og vera glaður :o)
Speki dagsins er því; Ekki fara þér um of í vinnu, það eru aðrir hlutir sem skipta svo miklu meira máli :-)
Annars er Elísabet að hugsa um að kaupa sér nýtt rúm sem mun verða mikill happafengur þar sem þröngt er oft á þingi í 140 centimetrum. Eða jafnvel 130. Verst að við eigum ekkert eftir að fara fram úr :)
Ég tók svo ákvörðun í gær um að byrja að vera skipulagður fyrir veturinn auk þess sem ég ætla að byrja að taka fleiri myndir því myndir eru jú bara skemmtilegar.
Ég veit, það ákveður enginn svona nema ég.. en ég á það til að vera smaaá skrýtinn c",)
More laterio....
27 ágúst 2007
Nú verður slakað á
Skrifað af....
Helgi Þór
kl.
10:42
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

6 ummæli:
"en ég á það til að vera smaaá skrýtinn c",)"
Já, auðvitað.. sure.. host! host!
Það mun kallast drengskaparheit að vera ekki með svona undirförul skot á félaga sína. Ég skal muna þér þetta. Skrýtinn hvað ;)
Ekkert svo skrýtinn samt;)
Annars bara henda kveðju á þig alla leið frá næstum því útlöndum!
nýtt rúm já....
-g-
Gaur! "More laterio..." Það er svo margt rangt við þetta...
:O) ég held að ég vinni ánægjuverðlaunin yfir nýja planinu þínu! ...Elísabet
Skrifa ummæli