Ég ákvað að taka út draslið sem var á síðunni hérna og setti inn könnun og 3 myndir sem ég stal af síðunni hennar Betu og tengla á e-a vel valda vini og vandamenn.
Þeir sem vilja vera "vinir mínir" úú, endilega setjið í kommentin slóðina á síðuna ykkar því ég vill endilega safna flottum lista þarna.
Það eru spennandi tímar framundan:) Af einhverjum ástæðum finnst mér alltíeinu voða auðvelt að tækla mikið af hlutum sem ég er búinn að vera að trassa lengi. Ég græjaði skólamálin mín og er að byrja á næsta mánudag, ætla að taka þetta með TROOOOMPI, ég er búinn að kaupa möppu undir heimilisbókhaldið mitt. Ég skil ekki hvað er í gangi. Jú samt smá ;)
Ég ætla að fá lánaða digital myndavél eða kaupa mér ódýra og taka myndir og setja hér inn og blogga í vetur.
-Helgi
HVAR ER MYNDIN AF MÉR :(
SvaraEyðaÞú varst alltaf dauður inní tjaldi...
SvaraEyðaúúúúú:) ekkert smá ánægð með nýja lookið! Þetta er rosa flott, enda í stíl við peisuna sem ég er í á myndunum:o) ....eitt í viðbót sem ég er sátt við OG það er mappan! hehehe
SvaraEyðaBetan...
ég skal vera vinur þinn
SvaraEyðaunnthor.blogspot.com