08 desember 2007

Jólablogg !

Ókei. Vááváávííívaaaa... Hvar byrjar maður?!

Það hefur ýýýmislegt gerst síðan ég bloggaði síðast. Það er nánast fyndið hvað maður getur verið fáránlega latur við að skrifa inn nokkrar línur en svo þegar maður byrjar þá getur maður varla hætt.

Ég var semsagt í prófum í hraðbraut sem ég var að klára í gær og nááááði öllu :-) vúhú! Sem þýðir að ég er kominn í jólafrí í það minnsta frá skólanum þó að ég byrji að vinna núna í Símanum og á FM aaalveg í kreisí törn fram að 18.des en þá verður tekið Símafrí þó svo að ég verði í úgvarpinu meira og minna öll jólin.

Það sem meira er er að snjórinn er kominn og jóóólalögin hljóma =) Allt að gerast....

Annars er hún Beta mín enn að prófast og verður það til 20.des..! Situr heima og lærir og lærir :-) ... ekki fær hún þennan lærdómsdugnað frá mér svo mikið er víst!


Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili ! Ætla að dæla inn fleiri myndum fljótlega.. Ný myndasíða á http://helgimyndir.myphotoalbum.com !

Þar til næst ! ;)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, það má nú deila um dugnaðinn í Betunni þessa dagana EN what the...:) ég vil bara fá hestaferð, pallaball og jólafrí:o) jeiiii þetta er alveg að koma.
...Beta

Nafnlaus sagði...

Yay! Hef stillt á fm yfir jólin ;)
Það og rúv amk..

Unknown sagði...

Til lukku med daginn í dag elskan Njóttu hans vel í jólafríinu...

Kv. Kristín "systir"...

Nafnlaus sagði...

Hann á afmæli í dag hann á afmæli í dag hann á afmæli hann Helgi hann á afmæli í dag :)

:) :) :)Til hamingju með daginn :) :) :)

kv.Gulla.