Við Íslendingar erum algjörir lúðar. Hvort sem það er bensín, áfengi eða matvara þá kaupum við alla hluti á uppsrengdu verði! Við nöldrum og tuðum eins og allir heilvita men sem skikkaðir væru til þess að kaupa einn líter af bensíni á meira en við borgum fyrir mjólkurlítrann, en það er allt og sumt! Það er allt sem við gerum, að væla og tuða!
Hvernig væri að gera e-ð í málinu. Auðvitað þýðir ekki fyrir einn mann að hætta að keyra, drekka bjór og fara í hunguverkfall. En hvernig væri að byrja sameiginlegt átak á e-i netsíðu eða í fjölmiðlum.
Annars hefur það komið á daginn að stjórnkerfi lands vors, hvort sem það er dómskerfið eða fjölmiðlar eru svo gerspillt að þeim væri ekki treystandi til að skýra hund á hlutlausan hátt! Allt snýst þetta um pólitík og aftur pólitík. Annaðhvort þarftu að vera ra**sleikjandi sjálfstæðismaður, helst með þverslaufu og mynd af Dabba á náttborðinu eða heita Jónína Ben og vera bara skrýtin. Fyndið þykir mér að Jónína Ben sé kennd við líkamsræktarstöðvar því svo virðist sem hún hafi aldrei stigið fæti inn í eina slíka.
Ég gæti af mörgum talist til örgustu sveitamanna, strákurinn sem hélt að stöðumælasekt væri kvittun fyrir því að leggja sá samt eitt það mesta brjálæði sem hann hefur vitað til!
..og það er húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur uppá höfða! Hafiði séð þetta hús! Glerin hafa ekki gardínur heldur breytast í frostrósagler með því að smella á takka. Gosbrunnar renna í gegnum allar hæðir og so on ! Þetta fara skattpeningarnir okkar í! Því að Alfreð og félagar í R-listanum dugði ekki að sitja í smekklegum skrifborðstól með meðalmennskuaðbúnað heldur þurftu þeir að reisa eitt glæsilegasta hús landsins, fyrir skrifstofur!! Þeir hafa litla indverja með þverslaufur sem einkaþjóna sem færa þeim kaffi!
og að lokum, ekki gefa ríkustu þjóð 20 milljónir króna úr ríkissjóði af því að þeir eyða peningunum sínum í að drepa saklaust fólk 15 þúsund kílómetra að heiman! ég vill minnast á að 20 milljónir króna duga ekki fyrir EINU flugskeyti!
prófum aðeins að hugsa,
takk
03 október 2005
Íslendingar eru fífl!
Skrifað af....
Helgi Þór
kl.
22:05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

11 ummæli:
alveg er ég sammála þer helgi .. ! þetta er bölvað kjaftæði stundum á þessu brjálaða íslandi!!
Heyr heyr heyr heyr !!!!
Drífuru þig ekki bara á þing?
Ja svona er þetta.....
Helgi minn, ég hélt nú að þú vissir að frostrósagler er alveg bráðnauðsynlegt í öllum ríkisstofnunum...
Hvað með Orkuna? Er hún líka að okra?:)
"Það var lagið. Þetta kallar maður sko bónus."
ég sé að minn er bara reiður!
Það er til samfélagsapparat til að mótmæla háu benzínverði - það kallast strætó og ólíkt því sem felstir halda fram er hann brúkaður af mjög mörgum. Ég er allavega aldrei einn í vagninum!
Málið er bara að fólk vill ekki gera neitt í hlutunum. Það tekur of mikið á! En fólki er eðlislægt að væla og nöldra og tuða - því miður - og lætur þar við sitja.
Við hinsvegar sem gerum eitthvað í málunum, við erum bara talin skrítin! ;)
Samfélagsrýnirinn Helgi mættur á svæðið. Eitthvað er nú til í þessu hjá þér en samt eru Íslenindgar ekki upp til hópa fífl. Ekki frekar en Pakistanar, Tyrkir, Norðmenn, Spánverjar eða hvaða þjóð sem er. Þetta með Orkuveituna er hárrétt og er til háborinnar skammar.
Vertu svo duglegri að blogga, hættu þessari 3 vikna bloggrútínu rugli.
elsku helgi minn! ég er svo glöð að þú sért aftur farinn að blogga :) svo gott að vita að lífið gengur sinn vanagang heima.
annars bara fínt héðan sko :) leiðinlegt samt að geta ekki fylgst með ykkur lummunum svona þegar þið eruð að fara af stað. En whatever, ég fylgist allavega með hér!
og settu svo link á mig fíflið þitt! (http://disas.blogspot.com)
heh sæti....
En svona fyrst ég kláraði að lesa færsluna:
- Fyrir það fyrsta eru það ekki skattpeningar allra Íslendinga sem fara í geimskipið orkuveitunnar heldur einungis Reykvíkinga. Fyrirtækið er að mestu í eigu Reykjavíkurborgar, en það getur vel verið svosum að ríkið eigi eitthvað í því. Held samt að ekki svo mikið af okkar pening fari í þetta rugl.
- En ég held að sólskermingin í húsinu sé nú ekki það sem mestur peningur fer í. Í versta falli hefðu bara verið keyptar mjög dýr gluggatjöld í staðinn. Gott dæmi um húsaklúður á vegum ríkisins er t.d. húsnæði ríkislögreglustjóra, sem við borguðum n.b. öll í, en í því húsi gleymdist að teikna raflagnir á HEILA HÆÐ og þegar kom að framkvæmdum þurfti meiriháttar breytingar til og vesen - plús helling aukafjárveitingu.
- Sammála þér samt með gjafirnar til BNA. Emerísk vinkona mín upplýsti mig um að Bush hefði tekist á fjórum vikum að eyða öllum þeim peningum sem Clinton náði að safna upp í allri sinni forsetatíð. Hvað höfum við uppúr því? Jújú, hærra olíuverð - svo mikið er víst. Kannski þessar tuttugu milljónir sem ríkissjóður gaf hafi komið frá olíufélögunum, eftir einhverjum leiðum?
- Nefnd á vegum einhvers alþjóðleg apparats gerir úttekt um spillingu í stjórnsýlsukerfum landa um heiminn. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að lítil sem engin spilling ætti sér stað í stjórnmálum á Íslandi. Ég velti stundum fyrir mér hvað svona mat kostar...
Skrifa ummæli