Já ég veit......
Ekki orð
Nýtt blogg á http://helgithor.wordpress.com
Helgi Þór
17 febrúar 2008
29 janúar 2008
Hvað er málið :) ?
Afhverju get ég ekki bloggað?
Er þetta leti ?
Sveimér þá, ég veit ekki.....
Á meðan að bloggi ðmitt liggur í dvala þá er mín ástkæra sambýliskona sem á aaaafmæli á föstudaginn dugleg að blogga, í það minnsta duglegri en maðurinn;)
http://www.123.is/elisabet456
08 desember 2007
Jólablogg !
Ókei. Vááváávííívaaaa... Hvar byrjar maður?!
Það hefur ýýým
islegt gerst síðan ég bloggaði síðast. Það er nánast fyndið hvað maður getur verið fáránlega latur við að skrifa inn nokkrar línur en svo þegar maður byrjar þá getur maður varla hætt.
Ég var semsagt í prófum í hraðbraut sem ég var að klára í gær og nááááði öllu :-) vúhú! Sem þýðir að ég er kominn í jólafrí í það minnsta frá skólanum þó að ég byrji að vinna núna í Símanum og á FM aaalveg í kreisí törn fram að 18.des en þá verður tekið Símafrí þó svo að ég verði í úgvarpinu meira og minna öll jólin.
Það sem meira er er að snjórinn er kominn og jóóólalögin hljóma =) Allt að gerast....
Annars er hún Beta mín enn að prófast og verður það til 20.des..! Situr heima og lærir og lærir :-) ... ekki fær hún þennan lærdómsdugnað frá mér svo mikið er víst!
Þar til næst ! ;)
24 nóvember 2007
21 nóvember 2007
Hvað hugsar þú :) ?
Ég var að koma úr mötuneytinu í Símanum þar sem við Benni áttum góðar umræður um hið vinsæla umfangsefni rökræðna: Trúarbrögð.
Við Benni erum nokkuð sammála í þessum efnum og erum í raun ekki ,,trúaðir" í þeim skilningi sem í orðinu felst en trúum þó á okkur sjálfa, almenna skynsemi, góða siði og venjur, kærleik og lykilhugtakið ,,það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skulið þér og þeim gjöra", og þótt setningin sé tekin úr biblíunni þá gæti hún allt eins hljómað ,,Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig".
Nú, aðalmálið í þessum pælingum okkar var þetta með hversu stór hluti mannkyns virðist hafa fatlaða rökhugsun þegar kemur að mikilvægum ,,lífs-gildis" málum á borð við trú, pólitískar afstöður og aðra hluti sem við í raun byggjum samfélagsgildi og líf okkar á.
Ég vill samt taka fram, og helst MEÐ STÓRUM STÖFUM að nú er ég á engan hátt að gera lítið úr trú eða reyna að fá fólk til að hætta að trúa. Það eina sem ég vill að fólk geri er einfaldlega að taka sig til og hugsa fyrir sig sjálf. Aðeins að vakna til umhugsunar, leggja hlutina á borðið, og taka ákvörðun um hvað þér finnst rökrétt.
Ég bendi hér á frábæra færslu sem Benni skrifaði um það hvernig guðir nánast allra trúarbragða eru byggðir á sama grunninum, stjörnufræði. Ég hvet þig til að kíkja á greinina hans Benna en þetta eru mjög merkilegt allt saman.
Það er tilhneiging mannsins, og hefur verið frá upphafi mannsins eins og við þekkjum hann í dag að trúa á eitthvað, hafa e-ð til þess að styðja þig og styrkja og gera þér ljóst að þú ert ekki ein/einn í þessum heimi. Þetta er allt saman mjög skiljanlegt, auðvitað er frábært að trúa. Hver vill ekki trúa því af öllu hjarta að það sé líf eftir dauðann, að heimurinn sé ekki svona stór og þú svona lítill því í raun og veru séum við mennirnir, aðalskepnan, guð horfir til okkar, æðri vera sem passar okkur.
EN æj ... ég ætla ekki að fara dýpra útí þetta eða mínar skoðanir á öllum þessum málum því eins og ég sagði þá er tilgangur þessarar færslu að fá fólk til að hugsa. Spáðu aðeins í þessu. Hverju trúir þú? Afhverju nákvæmlega? Því að pabbi þinn og mamma kenndu þér það? Afþví að heimurinn allur segir það? Af því að ,,það bara er svoleiðis"? Ímyndaðu þér að þú sért sá sem allt veist og það sem þér finnst og segir er það sem heimurinn fylgir. Afhverju er guð til ? Hefurðu séð það ? Eða bara lesið það í bók? Eins og allir hinir í heiminum ...
Egyptar sem trúa á Hóras sem fæddur var af hreinni mey þann 25.desember og átti 12 lærisveina. Grikkir sem trúa á guðinn sinn Attis sem fæddur var þann 25.desember af hreinni mey, stjarna vísaði á hann og hann átti 12 lærisveina. Við trúum á okkar Jesú sem fæddist þann 25.desember af hreinni mey og jaddíjaddí, við þekkjum öll söguna.
Ef ég segði þér í dag að Gunnar langalangalangafi minn sem var uppi árið 1540 hafi getað flogið, myndirðu trúa því. Auðvitað ekki. Það væri heimskulegt. En spurðu þig nú, myndirðu trúa því ef að ALLUR HEIMURINN tryði því og segði þér að það væri í raun og veru satt. Mamma þín og pabbi. Amma þín og afi. Allir. Auðvitað gat hann Gunni gamli flogið. Það vita allir.
20 nóvember 2007
8 og 9 ára kærðir fyrir nauðgun !
Ég er ekki beint fyrstur með fréttirnar í dag en ég bara varð að skrifa aðeins um grein sem að birtist á mbl.is í gær sem segir frá 8 og 9 ára strákum sem kærðir hafa verið fyrir mannrán og nauðgun á 11 ára gamalli vinkonu sinni á meðan þau voru að leik út í skógi.
,,Þrír bandarískir piltar á aldrinum 8-9 ára eru í haldi lögreglu grunaðir um að hafa rænt 11 ára gamalli stúlku og einn þeirra hafi síðan nauðgað henni í skógi í nágrenni úthverfis Atlanta. Voru piltarnir handteknir í dag en meint nauðgun átti sér stað á fimmtudag. Móðir stúlkunnar kærði nauðgunina til lögreglu í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var stúlkan að leika við drengina er þeir fóru með hana í skóginn þar sem einn piltanna nauðgaði henni. Eru drengirnir kærðir fyrir nauðgun, mannrán, nauðung og kynferðislegt ofbeldi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki hefur verið ákveðið af saksóknaraembættinu hvort réttað verður yfir þeim sem fullorðnum."
Er ekki allt í lagi ?? Ekki ákveðið hvort réttað verður yfir þeim sem fullorðnum. Hvernig í ósköpunum er hægt að rétta yfir börnum undir 10 ára aldri eins og fullorðnum einstaklingum. Nú ber sögum barnanna ekki einu sinni saman og margir vilja meina að móðir stúlkunnar hafi brugðist á þennna hátt við þegar dóttir hennar sagði að þau hefði verið í læknisleik út í skógi.
Hvar eru foreldrarnir ... ?
12 nóvember 2007
Innflutningspartý

EN... partíið á laugardaginn fannst mér alveg bæta upp fyrir þessa bið, amk svo ég tali fyrir mig :) Held að flestir hafi skemmt sér konunglega, þó svo að sumir hafi skemmt sér MUUN meira en aðrir ;)
Ég veit amk að nágranninn okkar þakkaði sérstaklega fyrir fallegan keðjusöng í þríröddun...
HÉR ERU MYNDIRNAR >> LOKSINS ;)
Skrifað af....
Helgi Þór
kl.
11:13
11
komment
04 nóvember 2007
Lífið komið í eðlilegt horf og .... JÓLIN NÁLGAST VÚHÚ !!!!
Þegar ég byrjaði aftur að blogga þá lofaði ég e-m ónefndum því að ég myndi aldrei láta líða lengur en mánuð á milli bloggfærslna svo í ljósi drengskaparloforðsins þá mátti ég til með að henda inn einni færslu.
Heyrðu já.... að frétta...? Ég og Beta erum búin að koma okkur fyrir í kotinu okkar góða og allt meira og minna orðið klárt. Það er alveg ótrúlegt hvað það er yyyndislegt að eiga sitt eigið heimili, eiginlega kom mér á óvart. Það er einhvernveginn ALLT öðruvísi að leigja e-a íbúð sem e-r á en að koma heim til sín eftir langan dag í vinnunni (eða vinnunum) og setjast uppí sófa ,,heima hjá sér".
Annars er búið að vera svo kreisí mikið að gera uppá síðkastið. Sjálfur er ég að vinna upp mína 70% vinnu fyrir þennan mánuðinn á svona ca 10 dögum og svo byrjar skólinn aftur á fullu á morgun. Elísabet er búin að vera í verknámi OG í vinnu OG að skila allnokkrum risa ritgerðum í skólanum OG reyna að byrja að læra undir prófin OG ...... já, en semsagt búið að vera kreisí eins og heyra má og við getum ekki BEEEÐIÐ eftir jólunum !!!
...talandi um jólin, þá finnst mér svo ótrúlega skemmtilegt að í fyrsta skipti í ár alveg síðan ég var barn hlakka ég til jólanna á þennan gamla góða jóla-hátt. Ég get ekki beðið eftir því að geta sofið út á morgnanna, verslað jólagjafir, setið heima og skrifað jólakort og borðað tilbúnar keyptar piparkökur úr búð og drukkið dísætt jólaöl, farið í bæinn á þorláksmessu (jafnvel með jólasveinahúfu), hitt fjölskylduna (báðar mínar) .. og bara, notið þess að eiga smá rólegan tíma án vinnu, skóla, verkefna, prófa, málningarvinnu eða almennu stressi. Þetta sýnir sig best í því að ég kem heim daglega og byrja að segja Elísabetu frá öllum utanlandsferðatilboðunum sem ég var að skoða í vinnunni. Allavega, verður fríið langþráð :)
Ég er meira að segja farinn að ganga svo langt í fyrsta skipti á ævi minni að vilja fá jólaljósin upp snemma í ár og svindla smá... oooog ég setti gamla Hvít Jól jóladiskinn á í gær, og þá fyrst komst ég í jólastuð.
Hefurðu spáð í því hvað jólin væru mikið minna hátíðleg jólaleg án tónlistar, jólalaganna. Ef maður færi út á þorláksmessukvöld, allt skreytt og litríkt og fagurt og svo hlustaði maður bara á Justin og 50 cent í útvarpinu á meðan.
Nei! Eins mikið og maður vill ekki að það byrji of snemma þá finnst mér svo frábært þegar útvarpsstöðvarnar byrja með jólalögin og gjörsamlega jólanauðga manni. En hátíðlegt orð, jólanauðgun. :o(
Ég segi Chest nuts roasting on an open flame .... (man ekki titilinn), Jólahjól, jólalagið með í svörtum fötum, ég sá mömmu kyssa jólasvein og Snjókorn falla!
Hvað er uppáhaldsjólalagið þitt ?
10 október 2007
Fluttur inn :o)
Loksins loksins sá ég að það var kominn tími á nýja bloggfærslu enda ekki lítið að frétta! Eins og glöggir vinir og vandamenn ættu að vera búnir að frétta þá er ég fluttur inn í nýju íbúðina með Betunni minni, kominn í sambúð og allt skráð og skrifað :-)
Íbúðin sem í fyrstu var með einu risastóru GRÆNU svefnherbergi, gráum hurðarlistum og gluggakistum og ógeðs-mangó gulum veggjum annarstaðar í íbúðinni er nú orðinn eins og ný. Við tókum okkur til (misstum okkur aðeins) og máluðum ALLT í íbúðinni. Alla veggi, loftin, alla hurðarkarma og gluggakistur og ég veit ekki hvað og hvað.
Hér með lofa ég myndum úr höllinni sem allra fyrst :-) (um leið og netið kemur íbúðina) .... en svo er reyndar mjög líklegt að Beta verði á undan mér þar sem hún er þekkt fyrir elju og metnað í bloggheiminum .... :-D
www.123.is/elisabet456
Svo var fleira að gerast en ég og mamma ákváðum að skipta um bíl. Með því sigldi gamli góði Opelinn úr hlaðinu og í staðinn er kominn fagurrauður Volvo S40 sem mun prýða Miklubrautina! Myndir koma síðar :-)
Annars er skólinn að pirra mig þessa dagana. Aðallega af því að í öllu íbúðarstússinu þá gleymdist hann dáldið og nú er ég ekki aaaalveg í bestu málunum en það vonandi reddast. Sem það reyndar pottþétt gerist, Volvo, nýtt (mitt fyrsta) alvöru heimili, og mín ástkæra sambýliskona :-) .....gerist það mikið betra :-)
meira fljótt...
Helgi
20 september 2007
Smá pælingar.....
e.ct.
Ef þú ert að melta það með sjálfum þér hvort læknisfræðifræði sé réttur kostur fyrir þig ert þú í sömu sporum og ég. Þessi ákvörðun, hvað vill ég gera við líf mitt, er ekki lítil en í raun samt svo einföld þegar og ef maður finnur það virkilega hvað maður vill. Það fyrsta sem ég held að maður þurfi að gera er að skoða hvað það er sem maður þarf í raun að leggja á sig til þess að komast þangað sem maður vill og vita nákvæmlega hvað maður er að hella sér út í. Hvað það er það í raun og veru sem starf læknisins felst í.
Hefurðu að geyma réttan persónuleika til að verða læknir? Hefurðu þrautseigjuna til þess að klára námið? Áttu auðvelt með að læra? Ertu góður að taka próf? Ertu tilbúin að fórna því sem þú þarft að fórna til að láta þetta gerast? og að lokum, langar þig til þess að hjálpa fólki, allt frá morðingjum til lögfræðinga og frá ömmu og afa til ungabarna? Allt eru þetta spurningar sem ég held að maður verði að spurja sig að sé maður í raun og veru að íhuga nám í læknisfræði.
Sumt fólk hefur vitað allt sitt líf að því langi til að verða læknar. Þeir fara beinu brautina, beint úr grunnskóla, á náttúrufræðibraut menntaskólanna og fljúga þaðan inn í læknisfræðina án þess nokkurntímann að missa sjónar á takmarkinu eða fá bakþanka. Fyrir okkur hin, getur ákvörðunin verið erfið. Maður þarf að skoða sjálfan sig svolítið vel, sjá starfið án alls glans og glamúrs og reyna eftir bestu getu að meta sjálfan sig, eins hlutlaust og hægt er.
Að verða læknir tekur tíma. Fyrir flesta tekur menntaskólinn sem í raun er beinn undirbúningur undir framhaldið 4 ár. Því næst tekur við 3 ára bóklegt nám auk 4 verklegra ára og eftir þessi 11 ár ertu í raun aðeins kominn með grunnþekkinguna. Að verða góður læknir krefst svo reynslu á reynslu ofan sem kemur aðeins einnig með tímanum.
Með í ferð á þessum tíma þarf jú töluverða þrautseigju og e-ð af gáfum líka þó að góð námstækni, skipulag og vinnusemi geti auðveldlega skilið að meðalmann sem flýgur í gegn á móti fluggáfuðum manni sem kolfellur en fyrst og fremst held ég að þetta snúist um áhugann sem þarf að vera til staðar alla leið.
Auk þessa held ég að mestu máli skipti að njóta þess að hjálpa öðrum og langa til að hjálpa öðrum því það er eitthvað sem verður ekki kennt.
Læknisfræðin er fag með endalausum valmöguleikum. Í hvaða öðru fagi geturðu valið milli þess að taka á móti börnum, hjálpa bólóttum unglingum, sjá um bráðaaðgerðir, fjarlægja æxli úr einhverjum eða aðstoða fólk sem á við geðveiki að stríða.
Þrátt fyrir allt þetta sem hér er nefnt kostar þetta allt fórnir. Auk allra áranna sem fólk þarf að taka strætó í skólann á meðan það lifir á námslánum má ekki gleyma allri ábyrgðinni sem starfinu fylgir, staðreyndinni að mistök geta verið jafn dýrmæt og líf og að langar vinnustundir geta tekið sinn toll, bæði á mann sjálfann og þá sem maður elskar :)
Annars fór ég bara að hugsa þetta ............
Skrifað af....
Helgi Þór
kl.
18:19
12
komment

