Já haldiði að hún mamma sé ekki bara að spá í að flytja í borgina, eða nánar tiltekið í Hafnafjörðinn og það gjörsamlega VIÐ HLIÐINA á Hermanni og pabba hans. Mér líst annars voðalega vel á þetta. Nú getur maður loksins aftur farið "heim til mömmu" í helgarmat og kaffi og JAFNVEL ef ég er heppinn fengið hana til að skúra (með mér) þegar hún kemur í heimsókn. ..... ætli þetta þýði að ég geti selt þvottavélina mína? Þið sjáið hvernig spurningar vakna upp!
Annars er allt gott og gott betur en það. Fínasta veður þessa dagana, reyni að vera iðinn við sundlaugarnar þrátt fyrir að vera jú svo alltaf í world class þess á milli...
Ég er búinn að panta far með Herjólfi til Eyja (er að fara á þjóðhátíð!!) á fimmtudeginum fyrir versló, ég og Vatnsberinn ákváðum að fara degi á undan öllum öðrum og taka forskot á sæluna... Taki það til sín sem eiga .. :)
Við Hemmi fórum í morgun og reynsluókum Audi TT, OFUR fögrum 180HÖ og túrbínusánd dauðans! Eeeen ég er ekkert abbó. Nú er ég bara að vera skynsamur. Ætla að eiga gamla gránann minn í amk ár í viðbót, taka skólann næsta vetur, vinna í Símanum af hörku og já.. taka násmanninn á þetta!
Svo ætla ég að reyna að kíkja heim á ísafjörð í lok júlí! Alveg möst......!
Meira seinna....
19 júní 2007
Stórar fréttir !
15 júní 2007
FM partey !
Já ég held það nú .. virkilega skemmtilegt effemm partí í gangi akkúrat núna með mér svo endilega hlustaðu á það! Annars er ég búinn að vera að vinna samfellt í 13 tíma núna og held að ég sé farin að keyra á e-m leyndum varabatteríum :o)
Endilega hringdu í 511-0957 fyrir þitt óskalag!
eða gemsann ef þú veist hann.... :)
FM957 í beinni á netinu >>>
12 júní 2007
Sumar og sól !!
Það var mikið! Ég er svo innilega að sumarið eigi eftir að verða allt í líkingu við þessa 3 sólardaga sem hafa verið undanfarið.
Annars er allt gott að frétta, og reyndar gott betur en þ
að :o) alveg frábært.. Dagarnir hafa farið í Heims Klassann, laugardalslaugina, Magna og nýja Guitar Hero leikinn sem hann keypti sér (en hann á ekki playstation svo þetta er allt heima hjá mér .. múhaha) og að lokum að sjálfsögðu vinnuna, sem hefur tekið tímana 2. Hef verið bæði á FM957 og í Símanum.
.. svo er ég bara e-ð svo glaður þessa dagana =) I have my reasons :o)
Annars á Ingvar nokkur Alfreðsson afmæli í dag og við elskum hann öll og hann er bestur og allt það ! Flott Ingvar... flott flott... ;)
09 júní 2007
Þráðlaust rafmagn !!
Vá hvað ég er fáránlega ánægður! Ég hef verið að rökræða við ónefndan vin minn í gegnum tíðina að þráðlaust rafmagn sé möguleiki og ætti að verða veruleiki eftir ekki of mörg ár og viti menn, nú er þetta allt að gerast.. Lestu þetta:
Bandarískir vísindamenn hafa hannað frumgerð að þráðlausri yfirfærslu á rafmagni frá orkugjafa til móttakara um tveggja metra leið. Þar með hefur verið sannað að hægt er að senda rafmagn þráðlaust í heimilistæki og tölvur. Tímaritið Science skýrði frá því hvernig 60 W ljósapera lýsti þráðlaust í 2ja metra fjarlægð frá orkugjafanum.
Tilraunaútgáfa af útbúnaðinum samanstendur af tveimur koparkeflum sem eru um 60 cm að ummáli og flytja orku með meðsveiflun sem er fyrirbæri sem fær hluti til að titra þegar orku með ákveðna tíðni er beitt. Þegar tveir hlutir hafa sömu meðsveiflun geta þeir skipst á orku án þess að hafa áhrif á aðra hluti í umhverfinu. Líkt og mörg hundruð vínglös af sömu stærð með mismiklum vökva hafa öll ólíka meðsveiflun eða hljómun en eitt glas mun springa eða hljóma ef réttri tíðni er náð.
WiTricity notfærir sér ekki hljóðbylgjur heldur rafsegulbylgjur með mjög lága tíðni. Í tilrauninni voru koparkeflin látin enduróma á 10 Mhz. Rafsegulbylgjurnar eru hættulausar fólki og ætla má að þessi tækni verði þróuð áfram og líklegt að rafmagnssnúrur heyri brátt sögunni til.
ENGAR RAFMAGNSSNÚRUR! HEYRIÐI ÞAÐ :o) !!!!Fréttin á mbl.is
08 júní 2007
Jeep Wrangler - Hot or not ?
Æj ég er svo veikur fyrir því að fá mér nýjan bíl og það versta er að allir bílarnir sem ég er að skoða eru algjörlega fáránleg kaup! Ég fór í dag og reynsluók einu stykki Jeep Wrangler 1995 árgerð, það væri ekkert lítið gaman að eignast einn svona til þess að geta nostrað svoldið við, lagað alla þessa "litlu hluti" og gert bílinn smátt að aaaalgjörum draumamola! Þó hann sé nú helvíti skemmtilegur eins og hann kemur úr sölunni.
En eftir reynsluaksturinn þá svona veit ég ekki alveg, þetta er jú bensínhákur, algjörlega GEFIÐ að hann bili áður en langt um líður og svo er þetta jú ekki besti innanbæjarbíllinn. Æj ég veit ekki. Er þetta kannski ekki málið?
PS. Það er hægt að taka þakið AF !! haha.. =)
Jeep Wranglerinn - Linkur hér
07 júní 2007
Ég ætla að endurvekja bloggið mitt !
Já sveimér þá ég ætla að gera enn eina tilraunina til að vera bloggari og í þetta skiptið ætla ég að leggja mig allan fram í að vera duglegur..
Eins og sést hér fyrir neðan þá eru næstum því 2 ár síðan ég skrifaði síðast inná þessa síðu og eins og sjá má á þeim skrifum hef ég verið e-ð voðalega bitur ungur maður á þeim tíma :-)
Þetta verður bara létt og skemmtilegt.
Mig langar að byrja á því að segja ykkur hvað ég er að gera í dag en þessa stundina er ég að vinna hjá Símanum í Tæknilegri Aðstoð auk þess sem ég hef verið að fá útrás fyrir talgleði mína bakvið mækinn á FM957.
Annars hefur nú margt gerst á þessu eina og hálfa ári, bæði gott og slæmt. Ég bý enn í Reykjavíkinni og er sem stendur að leigja með honum Markúsi félaga mínum frá önundarfirði. Eðaldrengur það...
Ég hef svarið þess heit að þetta sumar verði sumar úrbóta í félagsmálum mínum, ég ætla að endurnýja tengslin við gömlu vinina sem ég hef ekki heyrt í í ALLLLLTOOOF langan tíma :(
Frumsamda speki dagsins er semsagt: Eignastu vini, marga vini og ...... uu, vertu góður við þá !
