07 júní 2007

Ég ætla að endurvekja bloggið mitt !

Já sveimér þá ég ætla að gera enn eina tilraunina til að vera bloggari og í þetta skiptið ætla ég að leggja mig allan fram í að vera duglegur..

Eins og sést hér fyrir neðan þá eru næstum því 2 ár síðan ég skrifaði síðast inná þessa síðu og eins og sjá má á þeim skrifum hef ég verið e-ð voðalega bitur ungur maður á þeim tíma :-)

Þetta verður bara létt og skemmtilegt.

Mig langar að byrja á því að segja ykkur hvað ég er að gera í dag en þessa stundina er ég að vinna hjá Símanum í Tæknilegri Aðstoð auk þess sem ég hef verið að fá útrás fyrir talgleði mína bakvið mækinn á FM957.

Annars hefur nú margt gerst á þessu eina og hálfa ári, bæði gott og slæmt. Ég bý enn í Reykjavíkinni og er sem stendur að leigja með honum Markúsi félaga mínum frá önundarfirði. Eðaldrengur það...

Ég hef svarið þess heit að þetta sumar verði sumar úrbóta í félagsmálum mínum, ég ætla að endurnýja tengslin við gömlu vinina sem ég hef ekki heyrt í í ALLLLLTOOOF langan tíma :(

Frumsamda speki dagsins er semsagt: Eignastu vini, marga vini og ...... uu, vertu góður við þá !

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vúhúú... gaman gaman! Síðan er bara að muna að blogga og hitta mig :)

Nafnlaus sagði...

Blee :) flott blogg ;) halda svona áfram :D og gangi þér vel á fm ;) eðal útvarpsmaður á ferðinni :)

Nafnlaus sagði...

Jeij, komment strax :-) Verið dugleg að kommenta ;)

Nafnlaus sagði...

olræd
hef reyndar gaman að færslunni hér á undan

en yay
set í favourites ;)

Nafnlaus sagði...

æii gat eiginlega ekki farið nema að kommenta.. veit að vísu ekkert hvað ég get sagt, hehe að vísu er ég ekki alveg viss með þessa speki þína hehe en gott að reyna ;) heyri í þér