08 júní 2007

Jeep Wrangler - Hot or not ?

Æj ég er svo veikur fyrir því að fá mér nýjan bíl og það versta er að allir bílarnir sem ég er að skoða eru algjörlega fáránleg kaup! Ég fór í dag og reynsluók einu stykki Jeep Wrangler 1995 árgerð, það væri ekkert lítið gaman að eignast einn svona til þess að geta nostrað svoldið við, lagað alla þessa "litlu hluti" og gert bílinn smátt að aaaalgjörum draumamola! Þó hann sé nú helvíti skemmtilegur eins og hann kemur úr sölunni.

En eftir reynsluaksturinn þá svona veit ég ekki alveg, þetta er jú bensínhákur, algjörlega GEFIÐ að hann bili áður en langt um líður og svo er þetta jú ekki besti innanbæjarbíllinn. Æj ég veit ekki. Er þetta kannski ekki málið?

PS. Það er hægt að taka þakið AF !! haha.. =)

Jeep Wranglerinn - Linkur hér

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

held ekki helgi, fjölskyldubíllinn kemur betur út.. þessi sem þú varst að spá í ;)