09 júní 2007

Þráðlaust rafmagn !!

Vá hvað ég er fáránlega ánægður! Ég hef verið að rökræða við ónefndan vin minn í gegnum tíðina að þráðlaust rafmagn sé möguleiki og ætti að verða veruleiki eftir ekki of mörg ár og viti menn, nú er þetta allt að gerast.. Lestu þetta:

Bandarískir vísindamenn hafa hannað frumgerð að þráðlausri yfirfærslu á rafmagni frá orkugjafa til móttakara um tveggja metra leið. Þar með hefur verið sannað að hægt er að senda rafmagn þráðlaust í heimilistæki og tölvur. Tímaritið Science skýrði frá því hvernig 60 W ljósapera lýsti þráðlaust í 2ja metra fjarlægð frá orkugjafanum.

Tilraunaútgáfa af útbúnaðinum samanstendur af tveimur koparkeflum sem eru um 60 cm að ummáli og flytja orku með meðsveiflun sem er fyrirbæri sem fær hluti til að titra þegar orku með ákveðna tíðni er beitt. Þegar tveir hlutir hafa sömu meðsveiflun geta þeir skipst á orku án þess að hafa áhrif á aðra hluti í umhverfinu. Líkt og mörg hundruð vínglös af sömu stærð með mismiklum vökva hafa öll ólíka meðsveiflun eða hljómun en eitt glas mun springa eða hljóma ef réttri tíðni er náð.

WiTricity notfærir sér ekki hljóðbylgjur heldur rafsegulbylgjur með mjög lága tíðni. Í tilrauninni voru koparkeflin látin enduróma á 10 Mhz. Rafsegulbylgjurnar eru hættulausar fólki og ætla má að þessi tækni verði þróuð áfram og líklegt að rafmagnssnúrur heyri brátt sögunni til.

ENGAR RAFMAGNSSNÚRUR! HEYRIÐI ÞAÐ :o) !!!!

Fréttin á mbl.is

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þetta var svona næstum mogga-blogg :p

En, er ekkert á daga þína að drífa þessa dagana??

Nafnlaus sagði...

Að drífa á daga mína.. Jú veistu, reyndar er nú alveg margt mjög skemmtilegt að drífa á daga mína þessa dagana :) Er ekki líka e-ð að "Drífa" á daga þína þessa dagana 8-) ?

Nafnlaus sagði...

Hehe.. allt að gerast :)