Já haldiði að hún mamma sé ekki bara að spá í að flytja í borgina, eða nánar tiltekið í Hafnafjörðinn og það gjörsamlega VIÐ HLIÐINA á Hermanni og pabba hans. Mér líst annars voðalega vel á þetta. Nú getur maður loksins aftur farið "heim til mömmu" í helgarmat og kaffi og JAFNVEL ef ég er heppinn fengið hana til að skúra (með mér) þegar hún kemur í heimsókn. ..... ætli þetta þýði að ég geti selt þvottavélina mína? Þið sjáið hvernig spurningar vakna upp!
Annars er allt gott og gott betur en það. Fínasta veður þessa dagana, reyni að vera iðinn við sundlaugarnar þrátt fyrir að vera jú svo alltaf í world class þess á milli...
Ég er búinn að panta far með Herjólfi til Eyja (er að fara á þjóðhátíð!!) á fimmtudeginum fyrir versló, ég og Vatnsberinn ákváðum að fara degi á undan öllum öðrum og taka forskot á sæluna... Taki það til sín sem eiga .. :)
Við Hemmi fórum í morgun og reynsluókum Audi TT, OFUR fögrum 180HÖ og túrbínusánd dauðans! Eeeen ég er ekkert abbó. Nú er ég bara að vera skynsamur. Ætla að eiga gamla gránann minn í amk ár í viðbót, taka skólann næsta vetur, vinna í Símanum af hörku og já.. taka násmanninn á þetta!
Svo ætla ég að reyna að kíkja heim á ísafjörð í lok júlí! Alveg möst......!
Meira seinna....
19 júní 2007
Stórar fréttir !
Skrifað af....
Helgi Þór
kl.
18:19
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

6 ummæli:
Eyjar verða æði! ...og námsmenn sem geta treyst á múttu rokka! :o) ...Vatnsberinn
Þú fékkst 6 prik fyrir að kommenta;)
OKei ef ég commenta undir réttu nafni fæ ég þá nýja færslu??? :) ...Elísabet...
hah! alveg hreint magnað! ég er líka að fara á þjóðhátið! á miða með herjólfi aðfaranótt föstudags! þetta verður æði...xþ
gaman að þessu...
Þið skemmtið ykkur vel á þjóðhátið.... en á ekki að fara að koma með nýja færslu? Þar sem að maður hittir þig svona sjaldan þá les ég fréttir af þér bara hér á síðunni!
ohh þetta er allt svo duló og spennandi hjá ykkur stjörnumerkjarómantíkerum!
kveðja ljónið vinkona vatnsberans hahaha :)
Skrifa ummæli