27 ágúst 2007

Nú verður slakað á

Já sveimér þá, nú er liðinn hálfur mánuður síðan að ég byrjaði í Hraðbraut. Það hefur allt gengið vel so far, hef fengið fínar einkunnir úr þeim prófum sem ég hef tekið og allt annað gengið vel en auk skólans hef ég verið að vinna á FM eftir skóla frá 18 - 22 og svo allar helgar bæði laugardag og sunudag í Símanum. Svona áður en skólinn byrjaði hafði ég hugsað mér að gera þetta meira og minna í allan vetur en eftir 2 vikur hef ég séð að stundum er betra að fara sér aaaðeins hægar og vera glaður :o)

Speki dagsins er því; Ekki fara þér um of í vinnu, það eru aðrir hlutir sem skipta svo miklu meira máli :-)

Annars er Elísabet að hugsa um að kaupa sér nýtt rúm sem mun verða mikill happafengur þar sem þröngt er oft á þingi í 140 centimetrum. Eða jafnvel 130. Verst að við eigum ekkert eftir að fara fram úr :)

Ég tók svo ákvörðun í gær um að byrja að vera skipulagður fyrir veturinn auk þess sem ég ætla að byrja að taka fleiri myndir því myndir eru jú bara skemmtilegar.

Ég veit, það ákveður enginn svona nema ég.. en ég á það til að vera smaaá skrýtinn c",)

More laterio....

24 ágúst 2007

Bara nokkrar línur...

Ég er á lífi. Bara búið að vera brjálað að gera.

Skóli og vinna, skóli og vinna, en annars gengur vel í skólanum so far og ég held að ég eigi alveg eftir að tækla þetta fínt. Er í beinni öll virk kvöld núna þessar vikurnar á FM957 milli 18 - 22. Svona ef þú átt leið hjá útvarpi :0)

15 ágúst 2007

Allt og ekkert og Menningarnótt

Ég sit hér í Líffræði 203 og er að hlusta á kennarann minn tala um maga og meltingarfæri. Ég var svangur fyrir en svo þurfti hann að fara að tala um munnvatnsframleiðslu og mismunandi matartegundir svo nú er ég tilneyddur að fara og fá mér e-ð..

Annars er ég svooo ánægður með þetta fyrirkomulag í þessum skóla og svo skemmir ekki fyrir að fá stúdentshúfuna næsta vor. Þótt fyrr hefði verið.

Annars er bara gott að frétta, menningarnótt á næstu helgi og mikil pressa á mér. Í fyrsta lagi pressa frá sjálfum mér með að drífa mig í 10km-ana í maraþoninu og pressa frá strákunum að djamma. Ég á svona eftir að sjá til hvernig þetta fer.

Í gær fór ég með Betunni minni og litlu "strákunum okkar" í sund í Mosólaugina. Hún er alltaf jafn bissí enda ekki nema furða. Frábær dagur það sem endaði svo með því að ég var á FM í beinni frá 18 - 22.

..oog fékk kalkúnssubway!

Tinna, you're link is hier :)

12 ágúst 2007

Er að klára næturvakt......

....held ég sé að deyja!

Læt vita hvernig fer.

-H

09 ágúst 2007

Nýtt útlit - Nýjir tímar !

Ég ákvað að taka út draslið sem var á síðunni hérna og setti inn könnun og 3 myndir sem ég stal af síðunni hennar Betu og tengla á e-a vel valda vini og vandamenn.

Þeir sem vilja vera "vinir mínir" úú, endilega setjið í kommentin slóðina á síðuna ykkar því ég vill endilega safna flottum lista þarna.

Það eru spennandi tímar framundan:) Af einhverjum ástæðum finnst mér alltíeinu voða auðvelt að tækla mikið af hlutum sem ég er búinn að vera að trassa lengi. Ég græjaði skólamálin mín og er að byrja á næsta mánudag, ætla að taka þetta með TROOOOMPI, ég er búinn að kaupa möppu undir heimilisbókhaldið mitt. Ég skil ekki hvað er í gangi. Jú samt smá ;)

Ég ætla að fá lánaða digital myndavél eða kaupa mér ódýra og taka myndir og setja hér inn og blogga í vetur.

-Helgi

07 ágúst 2007

Þjóðhátíð 2007 !!

Jæja þá er liðin rúmur mánuður síðan ég bloggaði síðast og miiiikið og margt gerst síðan þá. Ég hef hreinlega haft svo mikið að gera að ég held ég geti með sanni sagt að ég hafi varla haft tíma til að skrifa neitt hér (fyrir utan 3 næturvaktir í röð þar sem ég gerði EKKERT) en kom ekki út orði vegna þreytu :)

En semsagt, margt hefur gerst!! Ég er loksins búinn að fá skólamálin mín á hreint. Ég fékk inn í Hraðbraut þar sem ég fer á skólasetningu á fimmtudagsmorguninn, ég minntist á það við mömmu og hún varð alveg miður sín að hún kæmist ekki með mér, ég sagði henni að það væri kannski ekki AAALVEG must að fylgja mér núna, hún þyrfti víst að sætta sig við að ég væri orðinn 249 mánaða gamall, 176 centimetrar og heil 70 kíló MEÐ skóltösku :o) svo ég held ég spjari mig nú á skólasetningunni með krökkum sem eru FÆDD ÁRIÐ 1991 ! JÁ ÉG VEIT NÍTJÁNHUNDURÐ NÍTÍU OG FOKKING EITT !!
En það er alltílagi, ég ætla bara að mæta og læra og læra og læra og verða stúdent vorið 2008. 2 árum á eftir áætlun.

En að máli málanna......................

ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM 2007
Ég fór í fyrsta skipti á Þjóðhátíð núna um helgina og var bara að koma heim í gær. Ég hafði ákveðið að fara fyrir löngu síðan "with the dudes", Markús og félögum en svo hittist svo vel á að Betan mín var einmitt líka á leiðinni með sínum vinum. Við ákváðum samt að fara bara 2 með herjólfi svona bara að gamni og vorum mætt á fimmtudagskvöldið klukkan 22.

Án þess að ég fari að fara yfir dagana hvern og einn þá var þessi ferð í stuttu máli einhver, ef ekki allra besta helgi lífs míns. Ég fékk að gista með stelpunum á gistiheimilinu flestar næturnar þar sem við áttum margar góðar stundir, mjög svo mis-edrú þó!

Sumir drápust inní tjaldi þessa helgi, aðrir strippuðu, einhver fór með með stelpu inní tjald en fékk það ekki vegna mikils áfengismagns í blóði, aðrir týndu bíllyklunum sínum, einhverjir rifust og sumir voru ástfangnir og hlustuðu á brekkusöng sem þeir munu aldrei gleyma.

Myndirnar hennar Betu hér >>

Meira fljótt!
Helgi