20 nóvember 2007

8 og 9 ára kærðir fyrir nauðgun !

Ég er ekki beint fyrstur með fréttirnar í dag en ég bara varð að skrifa aðeins um grein sem að birtist á mbl.is í gær sem segir frá 8 og 9 ára strákum sem kærðir hafa verið fyrir mannrán og nauðgun á 11 ára gamalli vinkonu sinni á meðan þau voru að leik út í skógi.

,,Þrír bandarískir piltar á aldrinum 8-9 ára eru í haldi lögreglu grunaðir um að hafa rænt 11 ára gamalli stúlku og einn þeirra hafi síðan nauðgað henni í skógi í nágrenni úthverfis Atlanta. Voru piltarnir handteknir í dag en meint nauðgun átti sér stað á fimmtudag. Móðir stúlkunnar kærði nauðgunina til lögreglu í gær.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var stúlkan að leika við drengina er þeir fóru með hana í skóginn þar sem einn piltanna nauðgaði henni. Eru drengirnir kærðir fyrir nauðgun, mannrán, nauðung og kynferðislegt ofbeldi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki hefur verið ákveðið af saksóknaraembættinu hvort réttað verður yfir þeim sem fullorðnum."

Er ekki allt í lagi ?? Ekki ákveðið hvort réttað verður yfir þeim sem fullorðnum. Hvernig í ósköpunum er hægt að rétta yfir börnum undir 10 ára aldri eins og fullorðnum einstaklingum. Nú ber sögum barnanna ekki einu sinni saman og margir vilja meina að móðir stúlkunnar hafi brugðist á þennna hátt við þegar dóttir hennar sagði að þau hefði verið í læknisleik út í skógi.

Mér bara blöskrar þetta svo ótrúlega og mér finnst bara með ólíkindum að Bandaríska réttarkerfið minni mann stundum á dómarana í Kongó sem eru að dæma geitur í 3 ára fangelsi. Þetta er ekki mikið skárra. Alveg sama hvað þessi börn gerðu af sér. Þú dæmir þau ekki eins og fullorðna einstaklinga. Kolbrjálað og siðblint 8 ára barn á ekki að líða fyrir uppeldi sitt með því að sitja í fangelsi næstu 50 árin.

Hvar eru foreldrarnir ... ?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli