Ég var að koma úr mötuneytinu í Símanum þar sem við Benni áttum góðar umræður um hið vinsæla umfangsefni rökræðna: Trúarbrögð.
Við Benni erum nokkuð sammála í þessum efnum og erum í raun ekki ,,trúaðir" í þeim skilningi sem í orðinu felst en trúum þó á okkur sjálfa, almenna skynsemi, góða siði og venjur, kærleik og lykilhugtakið ,,það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skulið þér og þeim gjöra", og þótt setningin sé tekin úr biblíunni þá gæti hún allt eins hljómað ,,Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig".
Nú, aðalmálið í þessum pælingum okkar var þetta með hversu stór hluti mannkyns virðist hafa fatlaða rökhugsun þegar kemur að mikilvægum ,,lífs-gildis" málum á borð við trú, pólitískar afstöður og aðra hluti sem við í raun byggjum samfélagsgildi og líf okkar á.
Ég vill samt taka fram, og helst MEÐ STÓRUM STÖFUM að nú er ég á engan hátt að gera lítið úr trú eða reyna að fá fólk til að hætta að trúa. Það eina sem ég vill að fólk geri er einfaldlega að taka sig til og hugsa fyrir sig sjálf. Aðeins að vakna til umhugsunar, leggja hlutina á borðið, og taka ákvörðun um hvað þér finnst rökrétt.
Ég bendi hér á frábæra færslu sem Benni skrifaði um það hvernig guðir nánast allra trúarbragða eru byggðir á sama grunninum, stjörnufræði. Ég hvet þig til að kíkja á greinina hans Benna en þetta eru mjög merkilegt allt saman.
Það er tilhneiging mannsins, og hefur verið frá upphafi mannsins eins og við þekkjum hann í dag að trúa á eitthvað, hafa e-ð til þess að styðja þig og styrkja og gera þér ljóst að þú ert ekki ein/einn í þessum heimi. Þetta er allt saman mjög skiljanlegt, auðvitað er frábært að trúa. Hver vill ekki trúa því af öllu hjarta að það sé líf eftir dauðann, að heimurinn sé ekki svona stór og þú svona lítill því í raun og veru séum við mennirnir, aðalskepnan, guð horfir til okkar, æðri vera sem passar okkur.
EN æj ... ég ætla ekki að fara dýpra útí þetta eða mínar skoðanir á öllum þessum málum því eins og ég sagði þá er tilgangur þessarar færslu að fá fólk til að hugsa. Spáðu aðeins í þessu. Hverju trúir þú? Afhverju nákvæmlega? Því að pabbi þinn og mamma kenndu þér það? Afþví að heimurinn allur segir það? Af því að ,,það bara er svoleiðis"? Ímyndaðu þér að þú sért sá sem allt veist og það sem þér finnst og segir er það sem heimurinn fylgir. Afhverju er guð til ? Hefurðu séð það ? Eða bara lesið það í bók? Eins og allir hinir í heiminum ...
Egyptar sem trúa á Hóras sem fæddur var af hreinni mey þann 25.desember og átti 12 lærisveina. Grikkir sem trúa á guðinn sinn Attis sem fæddur var þann 25.desember af hreinni mey, stjarna vísaði á hann og hann átti 12 lærisveina. Við trúum á okkar Jesú sem fæddist þann 25.desember af hreinni mey og jaddíjaddí, við þekkjum öll söguna.
Ef ég segði þér í dag að Gunnar langalangalangafi minn sem var uppi árið 1540 hafi getað flogið, myndirðu trúa því. Auðvitað ekki. Það væri heimskulegt. En spurðu þig nú, myndirðu trúa því ef að ALLUR HEIMURINN tryði því og segði þér að það væri í raun og veru satt. Mamma þín og pabbi. Amma þín og afi. Allir. Auðvitað gat hann Gunni gamli flogið. Það vita allir.
Hey... af hverju er nafnið mitt ekki í könnuninni??
SvaraEyðaJá, það er öllum heilbrigt að hafa góða rökhugsun og skoðanir:) ...Beta
SvaraEyðaAmen Helgi minn, amen og halelúja.
SvaraEyða"Smælaðu framan í heiminn og þá mun heimurinn smæla framan í þig"
Hjartanlega sammála.. og líka sídustu faerslu. Ég meina, hver hefur ekki farid í laeknisleik.. ;)
SvaraEyða