21 júlí 2005

Djamm á helginni!

Jæja, nú verður tekið á því á helginni!

Undanfarnar helgar höfum við Inga farið uppí sumarbústað og tekið því rólega og á síðustu helgi fór ég svo heim á Ísafjörð og fór í hóp-heimsóknir.

Núna er svo búið að ákveða að það verður djammað. Eða svo var mér tilkynnt frá Ingu í gær :o)
Það er víst smá fimmtudagsdjamm í kvöld, Valur í fríi annaðkvöld svo þá verður partí og svo á ball með Stuðmönnum og Hildi á laugardaginn á NASA!

Ég veit ekki hvort ég hef þetta af eftir svona langt djammfrí!?

Kemur í ljós......

1 ummæli:

Herdís Anna sagði...

loks að djamma og ég ekki í bænum! söss helgi minn.... sakna þín ;)