25 júlí 2005

Fínasta helgi (helgi)

Helgin var góð...!

Á föstudaginn var planið að kíkja í afmælið til Palla, kærasta Brynju, vinkonu Ingu, kærasta Helga (ég) en lítið varð úr því að Inga greyið var hálfveik og við vorum bara heima. Horfðum á sjónvarpið og höfðum það gott!

Á laugardaginn var ekkert planað en allir í lúmsku stuði. Við fórum til Völu um 10 leytið og sötruðum þar og hituðum upp fyrir ballið um kvöldið. Valur var að fara að syngja með Stuðmönnum á Nasa svo við eltum hana þangað (ég og Inga) og byrjuðum að dansa og áður en við vissum af var klukkan að ganga 5! Frábært djamm!

Svo í gærkvöldi kíktum við á The Longest Yard í bíó, góð mynd!

Meira í vikunni! :)

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

gott að u áttir góða helgi (helgi) hehehe

Nafnlaus sagði...

Ertu að tala um Hildi Völu þegar þú segir Vala ?..

Nafnlaus sagði...

jæja kallinn var ekkert gert um vesló???????

Nafnlaus sagði...

Hvað varð um að vera duglegur að blogga? Og ekki reyna halda því fram að það sé svo mikið að gera hjá þér í vinnunni... EKKI REYNA!

Helgi Þór sagði...

Þið eruð svo slöpp að kommenta :D